[17:59]
Vilhjálmur Egilsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég hafna því alveg að ég hafi verið með einhvern áfellisdóm á hæstv. forseta. Ég tel hins vegar að ég hafi verið að ræða hér um viðhorf sem komu fram. Ekki bara hjá hv. þm. Gunnlaugi Stefánssyni heldur ýmsum sem hafa talað hér. Ég tel ekki að í því felist neinn áfellisdómur. Ég tel mig líka geta lýst mínum skoðunum og leyft mér að vera ósammála öðrum hv. þm. án þess að það felist í því einhver áfellisdómur.
Varðandi það hvað er hagkvæmt við núverandi kvótakerfi þá vil ég bara benda hv. þm. Önnu Ólafsdóttur Björnsson á eitt. Ef Þjóðhagsstofnun hefði verið falið það verkefni fyrir svo sem þremur til fjórum árum að gera spá um það hvernig staðan væri í sjávarútveginum miðað við þau skilyrði sem nú ríkja varðandi aflabrögð og verðlag á erlendum mörkuðum þá hefði niðurstaðan án efa verið sú að sjávarútvegurinn væri ein rjúkandi rúst og hruninn atvinnuvegur. En með kvótakerfinu hefur tekist að gera út með mun hagkvæmari hætti en áður var og einnig hefur kvótakerfið skapað þær aðstæður í fiskvinnslu að menn eru miklu betur í stakk búnir en áður var til að auka þau verðmæti sem menn gera úr þeim afla sem kemur á land.