[21:51]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég verð víst að biðja hv. þm. forláts, ég gleymdi einum aðila sem gleymst hefur að hafa samráð við í upptalningu minni, en það eru stjórnarsinnar. Mér heyrðist á ræðu hér að það hefði gjarnan mátt vera betra og ítarlegra og út af fyrir sig er ég ekkert að hrópa húrra fyrir þeim vinnubrögðum. Það er alltaf matsatriði á hvaða stigi mál eru tekin inn í þing en ég tel að hér séum við með mál sem bersýnilega á svo langt í land að það er ekki bara ófullburða heldur er álitamál hvort það muni einhvern tíma verða til. Ég vek athygli á því að það er dálítið alvarlegt mál þar sem hér er um lögbundna endurskoðun að ræða. Hún hefur ekki skilað meiri árangri og þar vil ég fyrst og fremst kenna um samráðsleysi og þá við hagsmunaaðila að svo miklu leyti sem þeir eiga að koma að málinu. Ég tel að þeir eigi vissulega að gera það en ég tek undir með hv. þm. að þeir eiga ekki, alla vega ekki einn frekar en annar, að hafa mótandi áhrif en þá þarf líka að hafa um það samráð við þá sem eiga um málið að fjalla, bæði stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga, og það er greinilegt að það er margt ógert í því máli.