Stjórn fiskveiða

90. fundur
Þriðjudaginn 15. febrúar 1994, kl. 22:23:06 (4176)


[22:23]
     Guðjón Guðmundsson (andsvar) :
    Herra forseti. Hv. þm. Stefán Guðmundsson er búinn að veita svo oft andsvar hér í kvöld að ég held að hann sé farinn að ruglast eitthvað í þessu ef hann finnur það út að ég sé að leggja fram þetta frv. og ég sé að leggja til að þetta eigi að vera með þessum hætti. Þetta er alger misskilningur. Eins og kom fram í minni ræðu og mínu andsvari áðan þá hef ég haft þennan fyrirvara og hann er óbreyttur.