[22:51]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það eru ummæli hv. þm. varðandi það að það sé hreinlega skaðlegt að ræða afnám þeirra kvótaviðskipta sem nú eru við lýði sem vekja mig til umhugsunar. Ég hygg að hv. þm. geri sér grein fyrir að einhverjir þessara skaðvalda eru í hans eigin flokki. Ég býst ekki við að það hafi farið fram hjá honum en mér finnst ég ekki hafa fengið þau rök sem ég tel fullnægjandi fyrir þessu. Vissulega geri ég mér grein fyrir því að ef breyting verður á kvótaviðskiptum eða þau jafnvel lögð af, þá verður röskun á hlutafjármörkuðum. En mér finnst ekki við geta byggt upp fiskvinnslu- og sjávarútvegsstefnu út frá hlutafjármarkaði. Með fullri virðingu fyrir ungum og ófullburða hlutafjármarkaði á Íslandi. Mig hreinlega skortir rök fyrir þessari skoðun hv. þm. en ég treysti því að hann geti leitt mig í sannleikann um sínar hugsanir þó hann geti e.t.v ekki sannfært mig.