[22:53]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég held að það sé aldrei hægt að fá sannleikann með því að líta aðeins á aðra hlið mála eins og mér virðist hv. 5. þm. Norðurl. e. gera. Hann einfaldar mjög með því að halda því fram að það sé einungis skaðlegt sem fylgir því að afleggja þetta kerfi en ekki það sem hefur fylgt því. En ég held að hér hafi í dag og í kvöld komið fram í umræðunni svo mörg og viðamikil og veigamikil rök fyrir skaðsemi þessa kerfis sem við búum við að það sé líka nokkuð alvarlegt mál að halda því við. Ég tel að það sé líka skaðlegt þegar verið er að gera á hlut einstaklinga. Ég held líka að það sé skaðlegt þegar ákveðin fyrirtæki hafa farið mjög halloka í þeirri glímu sem verið hefur í þessum kvótaviðskiptum á undanförnum árum. Ég held að við séum að uppskera það að hluti af þeim 15 milljörðum, að ég taldi saman, sem hafa verið í gjaldþrotum að undanförnu sé einmitt vegna þessara mála.