[23:38]
Jóhann Ársælsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég skil bara ekki hvar hv. 5. þm. Norðurl. e. hefur verið. Hefur frjálst framsal á aflaheimildum ævinlega verið til staðar á Íslandi? Hvað skyldi vera langt síðan menn fóru að iðka þetta frjálsa framsal svona mikið? Og hvernig var ástandið í útgerðinni bara fyrir þremur árum þegar þetta frjálsa framsal var ekki nema svipur hjá sjón miðað við það sem það er í dag. Nú er það allt í einu orðið svo óskaplegt að það mundi breytast hreinlega í óskapnað, skilst mér, útgerð og fiskvinnsla í landinu, ef þessu frjálsa framsali yrði komið af. Var það undir þessu frjálsa framsali sem íslenskir sjómenn urðu afkastamestu sjómenn í heimi? Var það undir þessu kvótakerfi sem það gerðist? Nei, ekki aldeilis. Það var skeð fyrir þann tíma. Nú hafa afköstin minnkað undir þessu kerfi sem við höfum núna.
Ég held að hv. þm. geri sér ekki grein fyrir því heldur hvað mundi gerast þegar þetta frjálsa framsal færi af. En ég treysti mér alveg til þess að halda því fram með fullum rökum að það yrði nú ekki mikill héraðsbrestur. Menn yrðu náttúrlega að haga sér svolítið öðruvísi en þeir hafa gert síðustu þrjú árin en þeir mundu auðvitað finna leið út úr því. Ég held að það þurfi að ræða þessi grundvallaratriði miklu betur en hefur verið gert í hv. Alþingi og ég fagna alveg sérstaklega þeirri umræðu sem hefur farið fram í kvöld, ég fagna því alveg sérstaklega hvað margir þingmenn Sjálfstfl. hafa komið hér í ræðustólinn til að lýsa yfir öðrum skoðunum en hv. 5. þm. Norðurl. e. hefur á þessu máli.