[01:39]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þetta með festuna mun reynslan ein leiða í ljós. En mér þykir það annaðhvort alllítil athyglisgáfa eða lítill skilningur hjá hæstv. sjútvrh. hafi hann ekki gert sér grein fyrir því að það er mjög auðvelt að rökstyðja sjávarútvegsstefnu Kvennalistans, byggðakvótann, og ég á eftir annan ræðutíma þannig að það gæti vel verið að það væri ástæða til þess ef hæstv. sjútvrh. er ekki búinn að átta sig á þessu
að veita honum eina umferð í viðbót yfirferð yfir þessar ágætu tillögur vegna þess að það er einfaldlega orðhengilsháttur að halda því fram að þetta hafi ekki verið rökstutt. Þvert á móti hafa þessar hugmyndir verið afskaplega vel útfærðar og ítarlegar og þar af leiðandi tek ég ekki við slíkum skilaboðum. Ástæðan er viljaleysi en ekki það að ekki sé hægt að útfæra þessar hugmyndir. Viljaleysið er fullkomið.