Þorskveiðiheimildir

91. fundur
Miðvikudaginn 16. febrúar 1994, kl. 13:44:03 (4223)


[13:44]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Þetta er rangt hjá hv. þm. Eftir að ákvörðun hefur verið tekin á því árabili sem ég hef gengt þessu embætti þá hef ég aldrei lýst því yfir að það ætti að breyta henni eftir að ákvörðun hefur verið tekin. Á umræðustigum máls hafa menn auðvitað farið yfir alla þætti málsins fram að þeim tíma að ákvörðun er tekin sameiginlega af ríkisstjórn og endanlega og formlega af sjútvrh. og ég hef ætíð staðið að þeim ákvörðunum og segi: Þessi ákvörðun var tekin á tilteknum forsendum, þær forsendur hafa enn ekki breyst og því ekki efni til breytinga.