[14:05]
Valgerður Sverrisdóttir :
Hæstv. forseti. Hæstv. menntmrh. talaði um góðan hljómgrunn og ég veit um þennan fund sem haldinn var alveg nýlega þar sem kom fram mikil gagnrýni einmitt á þetta form sem þarna eru uppi hugmyndir um að verði á skólanum. En samkvæmt þessum hugmyndum á stjórn skólans að vera þannig skipuð að stjórnarmenn mega ekki á nokkurn hátt tengjast skólanum þannig að kennarar og skólarektor móta ekki stefnu um skólann sem slíkan. Það held ég að sé í sjálfu sér dálítið athyglisvert.
En eins og ég sagði áðan lýsi ég ánægju með það að menntmrh. vill --- ég met orð hans þannig --- fara varlega og hvet hann alveg eindregið til þess því að þetta fyrirkomulag er vægast sagt hæpið að mínu mati hvað snertir rekstur listaháskóla.