Vinna við búvörulagafrumvarp

92. fundur
Fimmtudaginn 17. febrúar 1994, kl. 10:37:25 (4274)


[10:37]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Herra forseti. Mál þetta sem hv. þm. nefndi hefur verið í vinnslu í hv. landbn. Ég veit ekki annað en nefndin hafi unnið mjög málefnalega og vel að málinu og fengið til sín fjölmarga sérfræðinga og hefur í raun ekki tekið langan tíma enn þá til vinnslu á þessu máli. Það fer ekkert á milli mála að það er ágreiningur á milli stjórnarflokkanna, innan ríkisstjórnarinnar, um vissa þætti og þeir þurfa að tala um það. Það breytir engu um hitt að landbn. er með málið í meðferð og ég veit ekki annað en hún hafi unnið mjög vel að málinu.