Stefnumótandi byggðaáætlun 1994--1997

92. fundur
Fimmtudaginn 17. febrúar 1994, kl. 16:56:51 (4327)


[16:56]
     Valgerður Sverrisdóttir (andsvar) :
    Herra forseti. Það er þetta ,,mjög fljótlega`` hjá hæstv. ríkisstjórn sem við eigum dálítið erfitt með að átta okkur á hvað þýðir. Nú fer að styttast í það að þessu þingi ljúki. A.m.k. fer að styttast í það að það verði síðustu forvöð að leggja fram mál og ég vil þá spyrja hæstv. forsrh.: Er búið að samþykkja tillögurnar í ríkisstjórn og eru málin kannski hjá stjórnarþingflokkunum? Er það þar sem er einhver fyrirstaða?