[15:30]
Fyrirspyrjandi (Kristín Ástgeirsdóttir) :
Virðulegi forseti. Ég fagna því að þessar viðræður skuli nú hafnar milli ríkisins og BSRB um þessi viðkvæmu mál sem við erum að fjalla um í þinginu og tengjast einkavæðingu ríkisstofnana. Ég ítreka það að þótt t.d. frv. um Lyfjaverslun ríkisins hafi verið löngu komið fram og BSRB hafi gefist kostur á að ræða við efh.- og viðskn. um þau mál þá var ástæðan fyrir því að þetta atriði var tekið inn í samninga ríkisins og BSRB þær áhyggjur sem BSRB hefur af sínum félagsmönnum í tengslum við einkavæðinguna. Það er ekkert óeðlilegt að þau mál séu rædd í víðu samhengi og menn fari sér hægt í einkavæðingu meðan á þeim viðræðum stendur.
Það eru fleiri fyrirtæki en Lyfjaverslun ríkisins sem við erum að fjalla um hér. Við erum t.d. að fjalla um Áburðarverksmiðju ríkisins en þar er reyndar, ef ég man rétt, ekki um að ræða félagsmenn í BSRB heldur BHMR og það málefni horfir svolítið öðruvísi við en þó er þar um þessi sömu vandamál að ræða sem snerta biðlaun og lífeyrisréttindi.
En kjarni málsins er auðvitað sá að okkur í efh.- og viðskn. barst bréf frá BSRB þar sem var vakin athygli á því að þessar viðræður væru ekki hafnar og því fannst mér rétt að spyrja hæstv. fjmrh. hvað hann ætlaði sér í þeim málum en ég fagna því að menn skuli nú vera sestir við að ræða þessi mikilvægu mál.