[15:36]
Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er satt að segja hálfhlálegt að heyra hv. þingmenn Framsfl. tala um þessa sérstaklega góðu stöðu sem sjávarútvegurinn var í þegar þeir skildu við í Stjórnarráðinu. Það væri fróðlegt að heyra afstöðu manna úr sjávarútvegi þegar þeir ræddu við hv. þm. Stefán Guðmundsson um þetta. Ég held að hann ætti bara að rifja upp þann vanda sem hann sem stjórnarmaður í Byggðastofnun hefur staðið frammi fyrir þegar hann hefur verið að fjalla um erfiða skuldastöðu og erfiða rekstrarstöðu fyrirtækja í sjávarútvegi sem hafa leitað til Byggðastofnunar. Og hvað með Atvinnutryggingarsjóð útflutningsgreina sem hann stóð að að setja á laggirnar til þess að reyna að koma til hjálpar í sjávarútvegi? Staðan er hins vegar sú og því getur hv. þm. ekki andmælt að hagur sjávarútvegsfyrirtækja versnaði mjög og hann hefur auðvitað versnað með minnkandi aflaheimildum fyrir utan það að tekjur sjávarútvegsins hafa fallið. Þetta ætti hv. þm. að vita.
En varðandi kröfu um hagræðingu þá er það alveg ljóst að það er sett fram krafa um að hagræða í sjávarútvegi. Ég hef ekki heyrt nokkurn annan andmæla því en hv. þm. og ég lýsi mikilli undrun minni að hann skuli hafa á móti því að það sé gerð hagræðingarkrafa í þeirri grein eins og annars staðar. Hins vegar er það alveg rétt að víða hefur tekist vel til með að hagræða í sjávarútvegi. Þróunarsjóðurinn er einn þáttur í því að auka þessa hagræðingu, en umfram allt að auðvelda fyrirtækjunum að brjótast úr þeim fortíðarvanda sem Framsfl. byggði upp á þeim árum sem hann var við völd.