Gerð flugmálaáætlunar

98. fundur
Mánudaginn 28. febrúar 1994, kl. 15:07:47 (4484)


[15:07]

     Stefán Guðmundsson :
    Virðulegi forseti. Ég heyrði ekkert nema þögnina. Var það kannski misskilningur hjá mér að beina fyrirspurn til hæstv. forseta um það hvort þessi vinnubrögð samrýmdust þeim meginmarkmiðum sem sett voru með breytingum á þingsköpum árið 1991 um það að styrkja stöðu þingnefnda? Það var fyrirspurnin. Og úr því að hæstv. forseti svaraði mér ekki þá mundi ég vinsamlegast óska eftir svari við því hvort ég hef ekki verið að tala við réttan aðila.