[15:19]
Jóhann Ársælsson :
Virðulegur forseti. Við erum komnir í töluverða klípu með þessi mál. Það er ekki mjög einfalt að ákveða að það eigi ekki að skrá þau skip á Íslandi sem íslenskir útgerðarmenn eru að kaupa til að gera út á erlend hafsvæði þegar við erum farnir að leyfa skipum sem skráð eru undir hentifánum að athafna sig á Íslandi og landa hér. Ég held að við verðum að gera það upp við okkur hvora leiðina við ætlum að fara. Því miður verð ég að segja það að ég sé ekki annað en að við þurfum að huga alvarlega að því að hverfa frá þeirri ákvörðun okkar að það megi ekki flytja inn eldri skip en 15 ára til þess að við getum boðið Íslendingum sem gera út á erlend hafsvæði upp á það að skrá hér skip og vera með þau skip undir íslenskum reglu. Ef við ætlum að hafa þetta eins og það er núna þá erum við að bjóða því heim að það verði gerð út hentifánaskip og að við höfum ekkert um það að segja hvers konar reglur eru um aðbúnað eða frágang á þeim skipum í öryggistilliti.