[16:26]
Fyrirspyrjandi (Árni R. Árnason) :
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir fyrirspurn til hæstv. utanrrh. um undirbúning að frísvæði á Suðurnesjum. Forsaga þeirrar fyrirspurnar er sú að málið hefur alllengi verið til umfjöllunar á vegum ríkisstjórnar, á vegum hæstv. ráðherra í hans ráðuneyti og til umfjöllunar í nefndum sem hann hefur skipað til að fjalla sérstaklega um framgang þess. M.a. hefur utanrmn. hv. Alþingis verið upplýst um framgang málsins og þar kom fram að svo virðist sem fleiri en einn aðili á vegum ráðuneytisins vinni að stofnun frísvæðis á Suðurnesjum. Því spyr ég, virðulegi forseti:
,,1. Hvað líður framkvæmd á tillögum nefndar um undirbúning að stofnun frísvæðis á Suðurnesjum sem ríkisstjórnin samþykkti í apríl sl.?
2. Hvenær er þess að vænta að Alþingi fái til umfjöllunar frv. til laga er setji frísvæði og fyrirtækjum er þar starfa skýra réttarstöðu og kjör í sköttum og tollum?
3. Hvenær er þess að vænta að önnur atriði tillagna nefndarinnar sjáist í framkvæmd?
4. Er samstarf flugvallarstjórans á Keflavíkurflugvelli og Sandgerðisbæjar að undirbúningi frísvæðis á landi í lögsögu Sandgerðis í samræmi við þann undirbúning sem til þessa hefur verið sagður miðast við stofnun frísvæðis innan marka lögsögu Njarðvíkur, Keflavíkur og Gerðahrepps? Eru fleiri aðgreindir aðilar innan ráðuneytisins ellegar í stofnunum sem undir það heyra að undirbúa stofnun fleiri en eins frísvæðis er byggi á nábýli við Keflavíkurflugvöll?``