Olíuúrgangur

99. fundur
Mánudaginn 28. febrúar 1994, kl. 17:05:52 (4537)


[17:05]
     Margrét Frímannsdóttir :
    Virðulegi forseti. Hér var minnst á nýsetta reglugerð sem lýtur að mengunarvörnum og framkvæmdum sveitarfélaga og mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Í hvaða lögum á þessi reglugerð sér stoð? Ég man ekki betur en að hér sé óafgreitt frv. um breytingar á lögum nr. 81, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, með síðari breytingum, vegna samnings um Evrópskt efnahagssvæði sem var lagt fram á síðasta þingi og hefur eftir því sem ég best veit ekki verið afgreitt enn. Þess vegna langar mig til að vita í hvaða lögum þessi reglugerð á sér stoð.