[15:33]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
Hæstv. forseti. Með frv. þessu er gerð breyting á skipan skipulagsnefndar fólksflutninga sem starfar á grundvelli laga um skipulag á fólksflutningum með langferðabifreiðum, nr. 53/1987. Nefndin er skipuð til að vera samgrh. til ráðuneytis um leyfisveitingar og önnur þau mál sem þessum flutningum tilheyra og nánar eru tilgreind í reglugerð er ráðherra óskar eftir áliti nefndarinnar á.
Í 1. gr. frv. er lagt til að fækkað verði um tvo fulltrúa í nefndinni, þ.e. fækkað úr sjö í fimm. Búnaðarfélag Íslands á þá ekki lengur fulltrúa í nefndinni og samgrh. skipar aðeins einn mann í stað tveggja áður. Verði frv. þetta að lögum mun Alþýðusamband Íslands, Félag hópferðaleyfishafa, Félag sérleyfishafa og Samband ísl. sveitarfélaga eiga einn fulltrúa í nefndinni hver og formaður nefndarinnar skipaður af samgrh. án tilnefningar. Ekki er kveðið á um sérstakan skipunartíma nefndarinnar. Miðað er við að nefndin verði skipuð ótímabundið og getur því skipunartími formanns nefndarinnar verið bundinn við embættistíma ráðherra.
Í ljósi þess að nefndinni er ætlað að vera samgrh. til ráðuneytis um leyfisveitingar og önnur mál varðandi fólksflutninga með langferðabifreiðum er eðlilegt að ráðherra hafi eitthvað um það að segja hver sé fulltrúi hans í nefndinni og hafi frjálsar hendur um að skipta um formann í henni. Á sama hátt geta aðilar sem tilnefna í nefndina óskað eftir því að endurskipa sinn fulltrúa.
Í 2. gr. frv. er gert ráð fyrir því að skipuð verði ný skipulagsnefnd fólksflutninga á grundvelli þessara breytingar sem frv. gerir ráð fyrir. Umboð starfandi skipulagsnefndar fellur þá niður, en skipunarbréf hennar er til 15. apríl 1995.
Ég legg til, hæstv. forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og samgn.