Um dagskrá

102. fundur
Fimmtudaginn 03. mars 1994, kl. 10:40:03 (4730)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Sú ósk hefur verið borin fram að þegar 6. dagskrármálið verður á dagskrá tekið, Stöðvun verkfalls fiskimanna, verði hæstv. forsrh. kominn til þingsalar og verður nú kannað hvort unnt sé að hefja þessa umræðu nú.
    Forseti vill spyrja hv. formann þingflokks Alþb. hvort hann geti fallist á að umræðan hefjist þó að hæstv. forsrh. sé ekki kominn, en ég hygg að hann komi innan skamms. --- Því er ekki mótmælt.