Hafnalög

103. fundur
Þriðjudaginn 08. mars 1994, kl. 14:22:16 (4829)



[14:22]
     Frsm. meiri hluta samgn. (Pálmi Jónsson) (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég lét þess getið að ég teldi þessa brtt. það auðskilda og ekki það veigamikla að ástæða væri til þess að halda um málið fund í samgn. Nú hefur hæstv. forseti frestað umræðunni og er velkomið að stuðla að því að nefndin geti hist hér í þinghúsinu á meðan það hlé stendur á þessari umræðu og önnur mál eru tekin fyrir.