Endurskoðun laga um síldarútvegsnefnd

105. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 11:26:52 (4916)


[11:26]
     Gísli S. Einarsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Hvers vegna heldur hv. 2. þm. Vestul. að það sé verið að flytja hér tillögu um endurskoðun laga? Það er vegna þess að lögin kveða á um að þetta eigi að fara í gegnum síldarútvegsnefnd. Það er einfaldlega þess vegna. Og þetta svar er nægjanlegt. Þó svo það hafi verið látið afskiptalítið þegar einstaklingar hafa verið að reyna að klóra í bakkann þá er frelsið ekki til staðar.