Endurskoðun laga um síldarútvegsnefnd

105. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 12:00:04 (4928)


[12:00]
     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. svaraði ekki spurningum mínum. Hann talaði um sleggjudóma en svaraði ekki spurningum mínum. Hann hefur trúlega ekki getað svarað þeim þannig að ég spyr annarrar spurningar: Hefur einhverjum útflytjanda síldar verið bannað að flytja út síld á Íslandi? Hefur einhver fengið bann við útflutningi? Það er spurning sem hann verður að svara.