Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 13:53:05 (4957)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Hæstv. landbrh. er rétt ókominn til fundarins og frsm. 1. minni hluta nefndarinnar hefur ekki gert athugasemdir við það og vill hefja sína framsögu þó að hæstv. ráðherra verði ekki kominn til fundar þá þegar. Að sjálfsögðu mun forseti taka tillit til þess ef ráðherra verður ekki kominn hingað áður en þeirri framsöguræðu lýkur, en forseti væntir þess að ekki líði margar mínútur áður en hæstv. ráðherra kemur í þinghúsið.