Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 13:56:18 (4959)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti hefur ekki hugsað sér að gera hádegisverðarhlé á þessum tíma þar sem búið er að loka matstofu og forseta er kunnugt um að hv. þm. hafa nú þegar bjargað sér að þessu leyti. Forseti hefur ákveðið að þessi umræða hefjist nú og væntir þess að tekið sé tillit til þeirrar ákvörðunar forseta þingsins á þessari stundu.