Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 13:57:56 (4961)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Það hefur ekki verið haft samráð við forseta um það að halda nefndarfund á þingfundartíma. Hér var nýttur tíminn milli kl. eitt og hálftvö sem ætlaður var til hádegisverðarhlés þar sem þingmenn voru að flytja mál og reynt að ljúka umræðu um þau. Sú sem hér talar gerði engar athugasemdir við það að forseti sem þá sat hér í stól leyfði hv. þm. að ljúka því máli.