Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 14:06:55 (4970)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti getur nú upplýst að vélin sem hæstv. samgrh. kom með frá Akureyri er þegar lent. Ef forseti hefði talið að það mundi líða langur tími þangað til hann kæmi til fundarins, þá hefði forseti að sjálfsögðu nýtt tímann og tekið fyrir 3. dagskrármálið. En nú vill svo til að vélin er lent --- og hæstv. ráðherra er nú þegar kominn til húss þannig að það ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að hefja þessa umræðu.