Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 16:17:44 (4980)


[16:17]
     Frsm. 2. minni hluta landbn. (Gísli S. Einarsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hef ákaflega litlu að bæta við það sem ég sagði áðan. Hér hefur enginn beygt einn eða neinn. Það hefur aðeins verið staðið við það samkomulag sem gert var milli formanna stjórnarflokkanna og það liggur fyrir núna og er til umræðu og annað ekki.