Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 16:20:50 (4984)


[16:20]
     Frsm. 2. minni hluta landbn. (Gísli S. Einarsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Þykkar eru hljóðhimnur hæstv. landbrh. þar sem hann ekki skilur það sem ég var að skýra, að lagatextann erum við fjórmenningar sammála um. Nefndarálitið sem skýrir lagatextann vorum við ekki sammála um og það skýrir þá löngu ræðu sem áðan var flutt. Ég hef ekkert samþykkt í nefndaráliti 1. minni hluta. Ég hef samþykkt lagatextann eins og hann er settur fram.