[16:02]
Fyrirspyrjandi (Karen Erla Erlingsdóttir) :
Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að heyra að nýjar snjómokstursreglugerðir
munu nú líta dagsins ljós og ég er viss um að Austfirðingar munu fagna því að það eru hugmyndir uppi um aukna þjónustu og kannski helgarþjónustu þar inni. Hæstv. samgrh. minntist á að vegurinn yfir Hellisheiði væri ekki byggður uppi sem heilsársvegur en hann er töluvert mikið notaður líka að vetri til og hefur reynst ein besta samgöngubót sem við Austfirðingar höfum fengið núna á síðari árum og þess vegna teldi ég nauðsynlegt að fylgjast með því hvort ekki væri möguleiki að opna hann oftar eða nokkrum sinnum í viku. En eins og staðan er í dag þá er ekki um neitt slíkt að ræða.
Ég þakka hæstv. samgrh. fyrir svörin.