Framleiðsla og sala á búvörum

109. fundur
Þriðjudaginn 15. mars 1994, kl. 21:01:28 (5111)


[21:01]
     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 4. þm. Vesturl. fyrir skýringarnar. Ég legg hins vegar enn og aftur áherslu á það að meginatriðin eru að þær breytingartillögur sem hér eru til umfjöllunar og eru tillögur 1. minni hluta hv. landbn. eru tillögur stjórnarflokkanna. Þær eru skýrðar mjög ítarlega og með vönduðum hætti í nefndaráliti 1. minni hlutans. Ég legg bara áherslu á það í umræðunni að það er sú skýring á bak við breytingartillögurnar sem ber að taka gildar. Yfirklór og sögulegt yfirlit Alþfl. að öðru leyti í þessu máli er ekki innlegg til að styðja þær breytingartillögur sem hér eru til umfjöllunar.