[23:10]
Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það gladdi mig að sjá hæstv. utanrrh. hér áðan. Ég sá að það er svolítill eldur enn þá í gömlu glæðunum.
Ég get ekki séð að ég hafi veist að fjarstöddum manni þó ég reki hans stjórnarathafnir. (Gripið fram í.) Það er undarlegt ef ekki má rekja stjórnarathafnir manna. Ég hef ekkert gert nema rakið þær og er þess vegna ekkert að veitast að fjarstöddum manni og vísa því heim til föðurhúsanna.
Ég vil í annan stað segja að það liggur alveg ljóst fyrir, hæstv. utanrrh., að í ríkisstjórninni var samþykkt eftir að hæstaréttardómur féll að hið fyrra réttarástand yrði skapað sem var í desember. Um það varð okkar samkomulag. Og það var skýrt tekið fram áður en frv. mitt var lagt fram að það skyldi athugað í nefnd, rækilega, hvort það stæðist skoðun hinna hæfustu lögmanna enda hefði ekkert þýtt fyrir ríkisstjórnina eða okkur tvo eða neina aðra menn að ætla að fá Alþingi til þess öðru sinni að samþykkja lagafrv. sem jafnóðum yrði dæmt ónýtt af Hæstarétti þannig að virðing þingsins var í húfi. Við vorum að tala um að hið fyrra réttarástand yrði skapað. Það þarf ekki neina mælsku um þetta. Þetta var samkomulagið.