[01:08]
Frsm. 3. minni hluta landbn. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) (andsvar) :
Virðulegur forseti. Hæstv. forsrh. svaraði því ekki sem ég spurði hann að, hvað hann átti við þegar hann sagði í umræddu sjónvarpsviðtali að í þessum GATT-samningum fælist afskaplega lítið fyrir okkur Íslendinga. Mér er fullkomlega ljóst að Alþingi Íslendinga þarf að staðfesta Úrúgvæ-lotuna. Mér er jafnljóst að þó að það hafi dregist í 19 ár að samþykkja hina fyrri lotu, þá er hún afar mikilvæg fyrir okkur fyrir margra hluta sakir og ég hef enga trú á því að það sé nokkur vilji fyrir því á Alþingi að láta reyna á einhvern tveggja ára frest sem við höfum til þess að staðfesta Úrúgvæ-lotuna. Ég er þeirrar skoðunar að þar sé það mikið í húfi að við hljótum að fullgera hann svo fljótt sem hann liggur fyrir og við munum ganga til þess samstarfs eftir því sem við getum á sama tíma og aðrar þjóðir. Um þetta hélt ég að væru ekki deilur, í raun ekki pólitískar deilur hér á landi og þess vegna kom mér afar mikið á óvart þessar yfirlýsingar hæstv. forsrh. á opinberum vettvangi um gildi GATT fyrir okkur og að okkur lægi ekkert á að samþykkja hann.