[01:17]
Frsm. 3. minni hluta landbn. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson) (um fundarstjórn) :
Virðulegur forseti. Ég nefndi þann möguleika að það væri hægt að skoða þessi mál á milli 2. og 3. umr. En það var reyndar að frágengnu því sem ég nefndi einnig að auðvitað væri eðlilegast að nefndin liti á þetta mál frekar áður en þessari umræðu lyki. Ekki minnkaði ástæðan til þess eftir andsvar hæstv. utanrrh. áðan ef við skoðum það í ljósi ræðu og andsvara hæstv. forsrh. hér í kvöld. Ég tel því afar mikilvægt að við náum einhverjum botni í þetta mál.