Framleiðsla og sala á búvörum

109. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 02:01:32 (5162)


     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vill taka fram vegna óska hv. 2. þm. Austurl. að forsn. hafði farið yfir stöðu mála og gert sér grein fyrir þeim umræðum sem væntanlega yrðu hér í kvöld. ( JGS: Sá nefndin fyrir umræðurnar?) Hv. þm. heyrðu þá niðurstöðu sem hér var kveðin upp af forsetastóli fyrr í kvöld að þess yrði freistað að ljúka þessari umræðu. En eins og fram hefur komið hjá hv. þm. þá hefur gefist allgóður tími til þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram og forseti telur því ekki ástæðu til að fresta umræðunni heldur vill freista þess að ljúka henni eins og gert var ráð fyrir.