Framleiðsla og sala á búvörum

109. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 02:05:13 (5164)




     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vill vegna orða hv. 3. þm. Vesturl. taka fram að á fundi með formönnum þingflokka í dag var farið yfir stöðu mála þar sem kynnt var að þessari umræðu yrði lokið í kvöld. Engar athugasemdir voru gerðar við það og forseti telur þess vegna ekki ástæðu til að kveða upp annan úrskurð um það.