Varamaður tekur þingsæti

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 13:32:20 (5172)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur bréf, dags. 15. febr. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun 1. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varaþm. Alþfl. í Austurlandskjördæmi, Hermann Níelsson íþróttakennari, Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Gunnlaugur Stefánsson, 5. þm. Austurl.``


    Hermann Níelsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.