Tvíhliða viðræður um stöðu Íslands gagnvart Evrópubandalaginu

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 14:05:58 (5200)


[14:05]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Ég vek athygli á vegna þessara orða að ríkisstjórnin hefur nýlega kynnt þinginu skýrslur um það með hvaða hætti ályktunum Alþingis hefur verið fylgt eftir og ég tel að þessi ríkisstjórn geti í samanburði við aðrar sæmilega við unað í þessum efnum og það mun auðvitað gerast varðandi þetta mál sem hv. þm. gerði að umtalsefni eins og önnur.