Hæstiréttur Íslands

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 14:26:07 (5204)

[14:26]
     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Við flm. þessa frv. erum prýðilega sátt við þá tillögu sem hér er gerð um að vísa þessu máli til nánari skoðunar. Hér er gerð sú róttæka brtt. af okkar hálfu að tillaga dómsmrh. um skipan hæstaréttardómara þurfi að leggjast fyrir Alþingi til meðferðar. Okkur þykir að það sé sanngjarnt og eðlilegt að það mál fái nánari skoðun á vettvangi ríkisstjórnar og réttarfarsnefndar og þess vegna styðjum við þessa tillögu um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar.