Framleiðsla og sala á búvörum

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 14:29:10 (5206)


[14:29]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegur forseti. Þingmenn Framsfl. munu styðja þennan lið, 1. liðinn, svo og a-lið 2. liðar. Það gerum við vegna þess að þetta er hluti af þeim tillögum sem við treystum okkur lengst til að samþykkja til þess að ná samstöðu um þetta mál hér á þingi. Eins og brtt. við 52. gr. var breytt í meðförum landbn., þá er hún orðin almennari. Hið ákveðna bannákvæði var tekið út þannig að við teljum að þessi grein geti staðið eftir þær breytingar sem verða þegar Úrúgvæ-lota GATT-samninganna tekur gildi.