Framleiðsla og sala á búvörum

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 14:43:37 (5212)


[14:43]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Lagatextinn eins og hann hefur verið samþykktur liggur skýr fyrir. Það liggur alveg skýrt fyrir einnig hvernig hann er skýrður af þeim mætu lögfræðingum sem hann sömdu, en hitt vekur athygli mína að helstu fulltrúar Framsfl. í þessum málum, hv. 6. þm. Norðurl. e., gerir það sem hann getur til þess að reyna að viðhalda óvissu í málefnum landbúnaðarins og hafði ég satt að segja ekki búist við að hann mundi beita sér með þeim hætti hér á Alþingi.