Framleiðsla og sala á búvörum

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 14:44:20 (5213)


[14:44]
     Guðni Ágústsson :
    Hæstv. forseti. Ég vildi segja frá því að mín skoðun er sú gagnvart þessum misvísandi álitum að nauðsynlegt er að taka málið upp í landbn. Það verður gert því að stjórnarflokkarnir fara ekki þar með meiri hluta lengur. Þar sem stjórnarandstaðan og Eggert Haukdal mynda hinn nýja meiri hluta, þá munum við í landbn. koma saman og fara yfir nefndarálitin og taka síðan ákvörðun í framhaldi af því.