[13:56]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Mál hafa nú enn flækst frá því að ég bað um orðið fyrir einum tveimur mínútum síðan þar sem ég hafði litið svo á að umræðan í dag yrði fyrst og fremst tengd ræðunni sem dreift var hér sl. mánudag og átti að vera innlegg hæstv. utanrrh. og eftir því sem ég heyrði munnleg skýrsla hæstv. ráðherra. Það var það orðalag sem ég heyrði. Þetta skýtur nokkuð skökku við ef ekki er hægt að fá það á hreint um hvað á að ræða og ég vil sérstaklega vekja athygli á því að það er mikill munur á því annars vegar hvort rætt verður um þessa ræðu sem bæði felur í sér umræður um efnahags- og viðskiptaumhverfi Íslendinga og önnur efni er varða utanríkismál eða hvort einungis á að ræða þann þátt sem ekki kemur við utanríkisviðskiptum sérstaklega vegna þess að ræðan ber það fyllilega með sér að það hafi í rauninni verið hvort tveggja undir. Aftur á móti eru þær tvær skýrslur sem hafa verið lagðar fram sem þingskjöl að mörgu leyti aðskildar að efni til þannig að áður en þessi umræða hefst held ég að það sé lágmarkskurteisi gagnvart þingmönnum, og er þá ekki mikið í lagt, að þetta komist á hreint.