Um dagskrá

112. fundur
Föstudaginn 18. mars 1994, kl. 13:19:31 (5327)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Það kom fram ósk frá hv. 9. þm. Reykv. um að fresta næsta dagskrármáli og ráðherra hefur lýst því að hann sé alveg samþykkur því. Nú er hugmyndin að gera hálftíma hlé og til upplýsingar fyrir þingmenn þá vildi forseti geta þess að þjóðminjalög verða ekki tekin til umræðu á þessum fundi.