[13:53]
Frsm. meiri hluta fjárln. (Sigbjörn Gunnarsson) :
Virðulegi forseti. Þetta mál hefur tafist allnokkuð í meðförum þingsins og hafa miklar deilur verið sérstaklega um uppsetningu ríkisreiknings sem þetta mál tengist að nokkru leyti. Hins vegar þykir fjárln. nauðsynlegt að frv. verði afgreitt. Í áliti meiri hluta fjárln. segir að nefndin hefur haft frv. til meðferðar og fengið til viðræðna við sig fulltrúa Ríkisendurskoðunar og fjmrn. og fengið skýringar og svör um einstök atriði. Meiri hlutinn mælir með að frv. verði samþykkt og telur að fullnægjandi skýringar hafi fengist frá þeim aðilum sem nefndin hefur rætt við.