Heilbrigðisþjónusta

112. fundur
Föstudaginn 18. mars 1994, kl. 15:47:59 (5354)


[15:47]
     Lára Margrét Ragnarsdóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég held að hv. flm. og ég séum að verða nokkuð sammála. En ég vil þó telja að sú þróun eins og ég benti á sem orðið hefur á hópvinnu innan heilbrigðisstofnana á undanförnum árum sé orðin það jákvæð og það góð í dag að það sé ekki ástæða til að óttast að heilbrigðisstarfsfólk taki ekki frumkvæði í þessa veru þ.e. að nálgast sjúklinginn og leita þeirra sjúklinga sem ekki hafa uppburði í sér til að velja sér sjálfir trúnaðarmann.