[15:48]
Flm. (Anna Ólafsdóttir Björnsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég geri ráð fyrir að í vinnu nefndarinnar þá muni m.a. verða rætt á nýjan leik við fulltrúa þeirra fjölmörgu samtaka sjúklinga og aðstandenda þeirra sem hafa orðið til á undanförnum árum og ég býst við að samanlagt þá muni reynsla og viðleitni allra þessara aðila, sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks heilbrigðisþjónustu leiða okkur áfram á rétta leið. Og ég vona að það sé rétt að þessi þróun hafi orðið eins ör og hv. 13. þm. Reykv. vill meina en ég held að það sé full ástæða til að kanna það, m.a. með því að spjalla við félög sjúklinga og aðstandenda og reyna að komast í sátt að sameiginlegri niðurstöðu um það hvort þörf er á þeirri formfestu sem þetta frv. leggur til eða hvort það er nóg að halda áfram að þróa þá vinnu sem verið hefur. En allt eru þetta eins og við höfum hér fleiri en ein bent á leiðir í átt að sama markmiði, betri líðan allra á sjúkrastofnunum, sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks.