Hlutafélög

112. fundur
Föstudaginn 18. mars 1994, kl. 17:08:47 (5371)


[17:08]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég spurði að þessu að gefnu tilefni því að ég tel alveg nauðsynlegt þegar búið verður að skipta þessu upp í tvö félagsform, þar sem nú stendur ekki almennt nafnið um félag og síðan að það sé hlutafélag heldur stendur bara skammstöfunin, að í nafni félagsins og með þeirri skammstöfun sem fylgir komi fram hvers eðlis viðkomandi félag sé.