Framhald þingfundar

112. fundur
Föstudaginn 18. mars 1994, kl. 17:12:44 (5374)


[17:12]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég vil einnig spyrja um það hversu lengi sé hugsað að halda áfram fundi því að á fundi þingflokksformanna með forseta fyrir tveim dögum var lögð mikil áhersla á það að fundi yrði ekki haldið áfram hér eftir kl. 5 Ég vissi ekki annað heldur en við því hefði verið orðið. Ég vil því einnig leggja áherslu á það að við ljúkum nú fundi hér sem allra fyrst ef hæstv. forseti telur það mögulegt, en í ljósi þess sem við höfum verið að ræða skal ég þó heldur ekki leggjast gegn því að hæstv. ráðherra mæli fyrir frv. um eignarhlutafélög ef honum sýnist liggja á því, enda þessi tvö frumvörp alltengd. En ég mundi samt leggja áherslu á það, virðulegi forseti, að síðan færi þingfundi að ljúka.