Stjórnarskipunarlög

113. fundur
Mánudaginn 21. mars 1994, kl. 15:21:06 (5379)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Samkvæmt 42. gr. þingskapa skal kjósa sérnefnd til að fjalla um frv. til stjórnarskipunarlaga. Forseti telur eðlilegt að gefa þingflokkum ráðrúm til að velja menn í sérnefnd og frestar því málinu þar til það liggur fyrir. Það fer því ekki fram atkvæðagreiðsla um nefnd nú.