Verndun nytjavatns

114. fundur
Mánudaginn 21. mars 1994, kl. 15:43:56 (5387)


[15:43]
     Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) :
    Virðulegi forseti. Nú spyr hv. þm. Svavar Gestsson um mál sem ekki falla undir svið míns ráðuneytis. Mér er hins vegar kunnugt um þessi tvö frumvörp og þar hefur, eins og í umfjöllun um það frv. sem við ræddum hér fyrr, risið ágreiningur sem einmitt varðar eignarrétt. Ég held að ég gefi hv. þm. ærlegt svar þegar ég segi að ég held að það sé nánast alveg búið að jafna þann ágreining. Mér er ekki kunnugt um annað og ég hef verið í þeirri trú að þessi frumvörp verði lögð fram á þessu þingi.